Færslur: 2008 Apríl

28.04.2008 13:29

Rusl... og aftur rusl

Bærinn okkar kom ekki vel undan snjó;(

Eftir hádegi í dag fórum við á Ysinu út að tína rusl. Við tíndum í tvo svarta ruslapoka sem erfitt var að koma aftur upp í skóla... vegna þyngsla. 
Við hvetjum alla til að tína upp rusl í kringum sína lóð, gerum bæinn okkar hreinan og fínan.

Einn nemandi sagði í morgun.

"Ef við förum vel með umhverfið
þá fer umhverfið vel með okkur" !

Kveðja YS

18.04.2008 13:33

Dans....

Danssýning fyrir foreldra nemenda á Yngsta stigi verður í hádeginu á mánudag, klukkan 12:10 í stofu 10.

17.04.2008 14:14

Dans og útistærðfræði

Síðasti danstíminn verður á morgun föstudag. Það eru komnar inn myndir í albúmið, einnig eru að koma inn þrjú stutt myndbönd. Endilega kíkið á þetta;)

Við höfum notað góða veðrið svolítið síðustu daga og í albúmi er einnig að finna myndir úr útistærðfræðitíma. Nemendur söfnuðu upplýsingum og settu upp í súlurit. Hóparnir voru sex talsins og mismunandi hvaða verkefni þau fengu.

  • litir bíla
  • bíltegundir 
  • nagladekk / ekki nagladekk
  • stærð bíla

Endilega verið nú dugleg að kvitta í gestabókina. Kveðja YS.

09.04.2008 16:13

Íþróttahús

Við á Yngsta stigi eigum frjálsan tíma í íþróttahúsinu á föstudagsmorguninn... 10 broskarlar;)
Krakkarnir mega koma með íþróttaföt! Við löbbum saman frá skólanum klukkan 10 og komum aftur uppeftir í hádegismat.

Við erum örugglega að hreyfa okkur nóg þessa dagana. Við dönsum eina kennslustund á hverjum morgni og er mikið stuð! Ég var móð eftir hoppdans í morgun. Endilega takið sporið í stofunni heima. Við vorum að læra nýjan dans í morgun, held að hann heiti polki.... Pálína leiðréttir mig ef ég er að bulla eitthvað.

Krakkar munið, hæll, tá, hæll, tá..... 1,2,3,4....
og svo að klappa þrisvar sinnum með hægri hönd, svo þrisvar með vinstri, á lærin og svo báðar hendur.... Kveðja Gunna



07.04.2008 15:41

Bingó

Í félagsstarfinu á miðvikudag verður bingó... frá klukkan 16 - 17. Það kostar ekkert;)

03.04.2008 15:42

Myndmennt



Þessar fallegu myndir gerðu nemendur ys í vikunni. Þeir teiknuðu fyrst með blýanti, máluðu svo við vatnslitum og enduðu á því að fara yfir blýantslínurnar með tússpenna.
Njótið vel.... kveðja Gunna





02.04.2008 15:37

Bílar

Við erum að vinna í þemaverkefni um farartæki...
Okkur vantar myndir af bílum, gröfum, trukkum og öðrum græjum á hjólum og beltum;)
Ef þið eigið bílabæklinga eða blöð sem þið eruð búin að lesa, þá tökum við gjarnan við þeim. Kveðja, nemendur yngsta stigs.
    Flettingar í dag: 7
    Gestir í dag: 3
    Flettingar í gær: 40
    Gestir í gær: 15
    Samtals flettingar: 70591
    Samtals gestir: 20798
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 02:31:33