Færslur: 2008 Maí

31.05.2008 11:15

Hvað var í pakkanum?

Þessi flotta myndavél var í pakkanum sem við fengum á skólaslitunum. Hún er viðurkenning fyrir Búðaverkefnið... Gott að hafa alltaf myndavél í stofunni.

30.05.2008 13:33

Skólanum..

var slitið í gær í Skrúð... Gleðilegt sumar og hafið það gott!
Sjáumst í lok sumars í skólanum.

Kveðja starfsfólk GF

Bylgja setti inn myndbönd (sjá myndbönd hér til hægri) sem krakkarnir á miðstigi settu saman í vetur. Frábærar myndasögur. Endilega kíkið á það.

27.05.2008 16:43

Hjóladagurinnn...

.. var mjög vel heppnaður. Veðrið draumur. Slysókonur grilluðu og gáfu öllum Svala og ís. Löggan skoðaði hjólin. Eimskip og Kiwanis gáfu 1. bekkingum hjálm.. og fleira og fleira, skoðið myndirnar:)

Sjáumst svo á skólaslitunum á fimmtudag í Skrúð klukkan 17:30.




26.05.2008 16:43

Nýjar myndir

Það eru komnar inn myndir frá því á föstudag og sveitaferðinni okkar í morgun... endilega kíkið á það.

20.05.2008 14:35

Egg.. og aftur egg

Þegar Dagný Sól kom með svartfuglseggið um daginn grunaði mig ekki að safnið okkar yrði orðið svona stórt viku seinna. Viktor Már fór með pabba sínum út í náttúruna í gær og það bættust fimm egg við.. Krakkarnir eru svo áhguasamir um eggin og er ég viss um að þau muna frekar hvernig egg fuglarnir eiga með því að sjá þau og handfjatla- í stað þess að sjá þau einungis á mynd. Frábært! Ég er komin með verk í eyrun á því að blása úr þessu.. en það jafnar sig ;)

16.05.2008 14:59

Búðir

Magga Friðriks færði okkur nokkrar gamlar myndir í viðbót. Þær eru í albúminu Búðir... Endilega kíkið á þær. Hér kemur ein af gamla Oddaverkstæðinu.

14.05.2008 21:39

Lokahátíð

Í dag var lokahátíð samstarfs Yngsta stigs og Leikskólans Kærabæjar. Leikskólakennarar grilluðu og svo var leikið og trallað;)

Dagný Sól kom með svartsfuglsegg sem ég blés úr og fer það í "gulla" skápinn okkar.

Myndir í albúminu;) Kveðja Gunna.

13.05.2008 16:17

Loksins

......gat ég sett inn myndir frá gönguferð okkar um bæinn okkar í síðustu viku. Kerfið var eitthvað að stríða mér. Endilega kíkið á ... svo setti ég inn líka ýmsar gamlar myndir sem við fundum á netinu. Nemendur völdu sér eina mynd til að vinna textílverk eftir í Búðaverkefninu;) 100 ára afmæli Búða.
Kveðja Gunna

08.05.2008 14:33

Íþróttadagur

verður á morgun. Nemendur þurfa ekki að koma með skólatöskuna, bara nesti og koma vel klædd. Nemendur sem eru í áskrift á ávöxtum fá þá inni í íþróttahúsi.
Kveðja Gunna

07.05.2008 14:49

Búðir 100 ára

Nú erum við í GF að vinna verkefni - Búðir 100 ára.... Við fórum í morgun um bæinn okkar og skoðuðum gömul hús og minnismerki. Næstu daga munum við vinna textílverk um Búði. Nemendur velja sér hús, bát, persónu eða minnismerki til að vinna og svo tengjum við allt saman í eitt verk.





Hver á þessa peysu?? Hún hefur verið í stofunni hjá okkur í nokkrar vikur.

02.05.2008 15:57

Hvar er peysan mín?

Nú eru skólapeysurnar, sem 9. bekkur var að selja, komnar.

Vinsamlegast merkið skólapeysurnar. . . .
Ég sé fyrir mér 25 nemendur, alla í eins peysu!

Hvar er peysan mín?

Góða helgi;)
Kveðja Gunna
    Flettingar í dag: 7
    Gestir í dag: 3
    Flettingar í gær: 40
    Gestir í gær: 15
    Samtals flettingar: 70591
    Samtals gestir: 20798
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 02:31:33