Færslur: 2008 Ágúst

29.08.2008 20:48

Nýjar myndir

Líneik skólastýra setti inn nokkrar nýjar myndir úr skólastarfinu sem hún tók í gær....endilega kíkið í albúmið.

21.08.2008 13:21

 Efniskostnaður 3000 kr.

Það má koma með peninginn í skólann eða leggja inn á reikning Yngsta stigs í Landsbankanum. Kt. 430308-0250.  Reikningur 0171-05-063111

Íþróttir verða úti fyrstu tvær vikurnar, mæting inn við íþróttahús. 1. bekkur byrjar í sundi 8. september, sjá nánar gulan miða frá íþróttakennurum.

Kveðja Gunna og Olla

19.08.2008 10:50

Skólinn byrjar ;)

Skólabyrjun

Föstudagur 22. ágúst  

2. og 3. bekkur mæta klukkan 10 og verða til klukkan 12.

 1. bekkur mætir klukkan 11:00 -12:00. Foreldrar velkomnir með nemendum.

Eins og undanfarin ár ætlum við á Yngsta stigi að bjóða upp á að við kaupum inn þau námsgögn sem nemendur þurfa. Þau eiga þá alla liti, skæri, yddara, strokleður og annað saman hér í skólanum. Einnig er inn í þessu stílabækur, teikniblokkir og mappa.

Þetta hefur gefist mjög vel. Efniskostnaður 3000 kr eins og síðasta skólaár.                               

Kveðja, Gunna og Olla

    Flettingar í dag: 1
    Gestir í dag: 1
    Flettingar í gær: 40
    Gestir í gær: 15
    Samtals flettingar: 70585
    Samtals gestir: 20796
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 00:08:30