Færslur: 2008 Október

28.10.2008 21:05

Lokahátíð...

Við erum að ljúka við þemaverkefnið okkar um himingeiminn.
Við ætlum að halda lokahátíð síðustu tvær kennslustundirnar, þriðjudaginn 4. nóvember það er frá klukkan 12 - 13:15.
Sjá nánar boðsbréf í vikulokin.

22.10.2008 11:00

Fróðleikur frá Júpiter

Fyrsta geimfarið sem fór til tunglsins hét Apolló. 

Svarthol er eins og ryksuga.

Fyrsti maðurinn til að fara út í geim hét Júríj Gagarín

Fyrstu mennirnir til tunglsins hétu Neil Armstrong og Edwin Aldrin. Þeir sögðu þetta er lítið skref mann en stórt fyrir mannkynið.

Sólin er mjög heit hún er stór eldhnöttur.

Plútó er minnstur er lengt frá sólinni.

Júpiter er stærsti hnötturinn.

Mars er dálitíð rauður.

Merkúr er næst sólinni.

 

 

Júpiter hópur

21.10.2008 16:53

Hundur í óskilum.

Tónlist fyrir alla á síðasta miðvikudag í Skrúði. Myndir komnar í albúm frá tónleikunum.



Hundur í óskilum.




17.10.2008 12:10

Meiri fróðleikur...

Það komast milljón Jarðir inn í sólina.
Venus er kölluð ástarstjarna.
Mars er ryðgaður.
Merkúr er stundum kallaður Merkúríus.
Ef við færum í þotu frá sólinni til Plútó þá værum við 790 ár á leiðinni.
Merkúr er næst sólu af reikistjörnunum.
Jörðin er þriðja frá Sólu.
Satúrnus einkennist af fallegum hringjum, það eru ísagnir.
Úranus er gashnöttur.
Plútó er úr klaka vegna þess að sólargeislarnir ná ekki þangað.
Satúrnus er með 20 tungl.
Ljósið sleppur ekki úr svartholi, Vera hræðist svarthol.
Að vera á Venus er eins og að vera á brennu, manni er heitt í framan og kalt á rassinum.
Sólkerfið okkar er í kerfi sem kallast Vetrarbrautin.

Merkúr og Venuns hópar

Arnar Freyr, Stefán Alex, Bjarki Þór, Sæþór Ívan, Fannar Haukur, Eva Dröfn, Eva Björk,
Birgitta Ás, Anna Björg, Mist, Emilía Fönn, Anya Hrund, Viktor Már, Davíð, Dagný Sól, Ronja Snædís

15.10.2008 10:36

Fróðleikur um himingeiminn - frá Mars hóp

Vissuð þið að það komast milljón Jarðir inn í sólina?

Sólin er logandi gashnöttur þar er 6000°C á yfirborðinu.

Vissuð þið að Úranus hefur 17 tungl?

Vissuð þið að Satúrnus hefur 20 tungl?

Jörðin er 365 daga að fara í kringum sólina.

Jörðin er 24 klukkutíma að snúast í kringum sjálfa sig.

Við ferðumst um geiminn á 30 km/sek.

Mars hefur tvö tungl sem heita ótti og ógn eða Fóbos og Deimos.

Á Merkúr er árið 59 dagar og hún er 88 daga að snúast í kringum sjálfa sig.

Venus þykir svo falleg að hún er stundum kölluð ástarstjarna.

Á Júpiter er eldrauður blettur þar geysir mikill stormur.

Satúrnus hefur fallega hringi í kringum sig þeir eru úr misstórum ísögnum.

Úranus er grænblár á að líta, hann er eins og sundlaug en það væri ekki gott að stinga sér á kaf í Úranus hann er gerður gashjúp en nær miðju er vökvi og svo er berkkjarni;)

Úranus og Venus núast rangsælis.

Úranus liggur á hliðinni miðað við aðrar reikistjörnur.

Neptúnus og Úranus eru stundum kallaðir tvíburarisar.

Plútó er langlang minnstur í sólkerfinu okkar, vetrarbrautinni. Hann er minni en tunglið okkar.

Jón Bragi, Ásgeir Páll, Rebekka Ýr, Elísabet Eir, Ísak Ari, Michael, Birta Mist og Ísak Máni.

08.10.2008 08:49

Smíði

Ég hef ákveðið með leyfi nemenda á Yngsta stigi að setja myndir inn hér á síðuna af verkefnum þeirra úr smíðinni. Nemendur taka sjálfir myndirnar og velja bakgrunn og uppstillingu alveg sjálf.  Sem sagt fyrsta albúm er komið inn. Njótið vel.
Kveðja
Jóhanna Kr. Hauksd.


Mars-hópurinn í smíði.

07.10.2008 17:45

Himingeimurinn

Í dag vorum við að leika okkur á vef sem er á netinu. Þar getum við séð hvað við værum gömul og þung ef við byggjum á hinum plánetunum í skólkerfinu okkar. Krökkunum fannst þetta mjög sniðugut og skemmtilegt. ..
Krakkar ef þið viljið kíkja á þetta heima með ættingjunum, klikkið þá HÉR og veljið í handraðanum.

Góða skemmtun;)

    Flettingar í dag: 7
    Gestir í dag: 3
    Flettingar í gær: 40
    Gestir í gær: 15
    Samtals flettingar: 70591
    Samtals gestir: 20798
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 02:31:33