Færslur: 2008 Nóvember
28.11.2008 14:57
Denni kom í heimsókn;)
Í dag kom Steinn Jónasson - Denni í heimsókn til okkar í skólann. Á hverju ári koma aðilar frá slökkviliðinu til að ræða við 3. bekk um eldvarnir. Einnig kom Björgvin Már, pabbi Mistar og sýndi okkur hvernig slökkviliðsmaður lítur út í reykköfunargalla.
Skrifað af Gunna
22.11.2008 13:43
fleiri myndir úr smíðatímum
Ég var að ljúka við að setja inn fleiri myndir úr smíðatímunum. Nemendur fara stundum á flug með myndavélina og það er bara gaman að leyfa öðrum að njóta þeirra mynda. Endilega kíkið í myndaalbúmið.
Kveðja
Jóhanna Kr. H

Ísak Ari með fína hálsmenið sem hann var að búa til með mikilli vinnu.

Ísak Máni og Ásgeir Páll á góðri stund.
Kveðja
Jóhanna Kr. H
Ísak Ari með fína hálsmenið sem hann var að búa til með mikilli vinnu.
Ísak Máni og Ásgeir Páll á góðri stund.
Skrifað af Jóhönnu Kr. H
21.11.2008 14:00
Ótitlað
Fannar Bjarki og Ásgeir Aron komu í heimsókn í vikunni og lásu fyrir nokkra nemendur sögu - dagur íslenskrar tungu....

Í gær vorum við með spurningakeppni um himingeiminn. Hvað lærðuð þið? Keppnin var mjög jöfn og spennandi. Mars hópurinn vann - var með allt rétt!

Í gær vorum við með spurningakeppni um himingeiminn. Hvað lærðuð þið? Keppnin var mjög jöfn og spennandi. Mars hópurinn vann - var með allt rétt!
Skrifað af Gunna
17.11.2008 15:35
Þemaverkefni
Nú eru þemadagar og árshátíð að baki og held ég að allir hafi verið ánægðir með þessa vinnu. Nú er allt komið aftur í fastar skorður hjá okkur, heimanámsmappan þar á meðal!
Nú er þemaverkefninu lokið um himingeiminn og nú tekur trúarbragðafræðsla við.
Fram að jólum munum við kynnast helstu trúarbrögðum heimsins.
Kveðja Yngsta stig
Hvernig fannst ykkur árshátíð GF ?
Sjá fleiri myndir í albúmi!




Nú er þemaverkefninu lokið um himingeiminn og nú tekur trúarbragðafræðsla við.
Fram að jólum munum við kynnast helstu trúarbrögðum heimsins.
Kveðja Yngsta stig
Hvernig fannst ykkur árshátíð GF ?
Sjá fleiri myndir í albúmi!




Skrifað af Gunna
13.11.2008 23:30
Árshátíð GF.
Árshátíð Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar var haldi í gærkvöldi í Skrúði og var fullt út að dyrum. Myndir eru komnar í albúm hér á YS síðunni.
Kertaljós við Skrúð.
Skrifað af Gunna
06.11.2008 14:10
Þemadagar
Nú eru þemadagar í fullum gangi... það eru komnar inn nokkrar myndir sem ljósmyndahóparnir tóku í dag:)
Skrifað af Gunna
Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 40
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 70591
Samtals gestir: 20798
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 02:31:33
