Færslur: 2009 Febrúar

26.02.2009 14:36

Öskudagur

Hér eru myndir frá öskudeginum, endilega kíkið á þær.
Kveðja
Jóhanna Kr. Hauksd.



Sjónæningi að störfum.



Prinsessur og prinsar.

25.02.2009 14:05

Öskudagur

Það eru komnar inn myndir ... tvö albúm, úr skólanum og úr íþróttahúsinu;)
Hafið það gott í vetrarfríinu og sjáumst á mándudag.
Kveðja starfsfólk skólans.

19.02.2009 14:22

Við erum að vinna í þemaverkefninu Landnámið. Í dag fórum við í gönguferð og stoppuðum við Vigdísarstein og lærðum um fyrstu landnámsmennina hér í firði. Það voru Vémundur og Vigdís. Við veltum fyrir okkur ýmsum spurningum eins og "af hverju komu þau hingað?"

Dettur ykkur eitthvað í hug?




13.02.2009 15:22

starfið á YS

Það eru komnar inn myndir... af 112 deginum og svo ýmsar myndir úr starfinu. Njótið vel;)




11.02.2009 12:51

112 - dagurinn

... í dag 11. 02. er 112 dagurinn. Við fórum í heimsókn til fimm aðila í slökkvistöð og Óslandi.
Það voru:
  • Slysavarnafélagið Hafdís
  • Björgunarsveitin Geisli
  • Rauði krossinn
  • Slökkviliðið
  • Lögreglan

Allir nemendur fengu gefins vesti frá Slysavarnadeildinni Hafdísi. Myndir koma inn á morgun:)

06.02.2009 20:49

Þorrablót

Þorrablótið var hjá okkur á fimmtudagsmorgun. Þar voru mættir nemendur á yngsta stigi og miðstigi og nokkrir kennarar, ásamt fjórum (vantaði tvo) tilvonandi nemendum á næsta ári ásamt kennurum þeirra.Það eru komnar inn myndir og nokkur myndbönd af söng og dansi. Endilega kíkið á þetta og gaman væri að fá að sjá "spor" eftir ykkur hér á vefnum:)

Njótið vel !

06.02.2009 08:27

Smíði

Nú eru komnir nýir hópar í smíði af Yngsta-stiginu og hinir sem voru í smíði eru komnir í tölvur. Ég var að setja inn nýjar myndir af verkefnum nemenda og vona ég að þið njótið þess að skoða þær.
Með kveðju
Jóhanna Kr. Hauksd


    Flettingar í dag: 7
    Gestir í dag: 3
    Flettingar í gær: 40
    Gestir í gær: 15
    Samtals flettingar: 70591
    Samtals gestir: 20798
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 02:31:33