Færslur: 2009 Maí
29.05.2009 13:43
Ferðalag til Eskifjarðar
Í gær fórum við í ferðalag til Eskifjarðar. Við byrjuðum á því að fara í silfurbergsnámuna í Helgustaðahreppi. Þar fórum við inn, nokkur saman og nutum aðstoðar Sigurbjarnar bílstjóra.
Náman er friðlýst svæði og þar má ekki taka "gullsteina". Þegar við komum í rútuna hrósuðum við þeim fyrir að virða reglurnar og taka ekki steina. Þá kom nú skrítinn svipur á nokkra krakka, sem samvisku sinnar vegna gátu ekki farið heim með fulla vasa af grjóti og tínt var upp úr vösum ;)
Sjómynjasafnið var næst heimstótt og þar var margt skemmtilegt og fróðlegt að sjá.
Við fengum inni í Grunnskóla Eskifjarðar til að borða nestið svo skelltum við okkur í sund.
Ferðin gekk mjög vel og voru krakkarnir okkur til sóma.
Í dag var svo hjóladagur og mjög gaman. Myndir frá ferðalaginu eru komnar inn.
Gleðilegt sumar!

Kveðja Gunna, Olla, Sibba og Íris.

Skrifað af Gunna
15.05.2009 15:44
Smíðaverkefni nemenda.
Ég var að ljúka við að setja inn myndir í albúm af smíðaverkefnum nemenda á Yngsta stigi og vona ég að þið njótið þess að skoða þau.
Með kveðju og takk fyrir veturinn.
Jóhanna Kristín Hauksdóttir.
Með kveðju og takk fyrir veturinn.
Jóhanna Kristín Hauksdóttir.
Minnisblokk.
Ökutæki sem geymir skriffæri.
Skrifað af Jóhanna Kr. Hauksd.
07.05.2009 14:22
Skordýr..
Í dag náðum við í skordýragildrurnar og þar leyndist ýmislegt! Við vorum í tvær kennslustundir að skoða flugur, kóngulær og fleira. Sjá nokkrar myndir í albúmi.
Skrifað af Gunna
06.05.2009 14:23
Dans... dans... dans...
Danssýning verður í Skrúð,
miðvikudaginn 13. maí,
klukkan 18:00.
Skrifað af Gunna
04.05.2009 13:14
Ótitlað
Tíminn flýgur og órtúlega fáir skóladagar eftir.
Við munum næstu daga fara á skordýraveiðar og fleira. Vonandi verðum við mikið útivið svo endilega koma klædd eftir veðri.
Við munum næstu daga fara á skordýraveiðar og fleira. Vonandi verðum við mikið útivið svo endilega koma klædd eftir veðri.
Skrifað af Gunna
Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 40
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 70591
Samtals gestir: 20798
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 02:31:33