Færslur: 2010 Janúar
20.01.2010 16:38
Dagfinnur
18.01.2010 15:24
Endurskin
Eru þau ekki fín og sýnileg?
12.01.2010 11:04
Ótitlað
Síðasti lífsleiknitíminn í dag og umræðuefnið var:
Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ?
Áslaug Stefanía
Ég ætla í menntaskóla og háskóla. Ég ætla að vinna í kaupfélaginu á Fáskrúðsfirði.
Davíð
Ég ætla að verða fótboltamaður. Til þess að verða fótboltamaður þarf að fara erlendis og æfa sig mikið, til að fara í enska boltann. Það þarf að æfa sig mikið til að komast í gott lið.
Dagný Sól
Ég ætla að verða dýralæknir.
Til þess að maður geti verið dýralæknir þá verður maður að fara til svíaríkis og menntaskóla. Mig langar að verða dýralæknir af því að ég hef svo mikinn áhuga á dýrum.
Sæþór Ívan
Ég ætla að verða fótboltamaður. Ég er góður í fótbolta og ég þarf að borða holt eins og epli og banana og maður þarf að drekka holt eins og vatn.
Sara Rut
Mig langar að verða fatabúðakona og selja föt. Ég er næstum allaf í fataleik og ég er næstum alltaf búðakonan. Ég er líka að kaupa föt og þá er Malen búðakonan. Ég ætla að verða mjög mikil gella.
Bjarki Þór
Ég ætla að verða fótboltamaður. Ég þarf að fara í fótboltaskóla og borða hollan mat.
Elísabet Eir
Mig langar að verða naglakona og leikari.
Ég þarf að fara í leiklistarskóa til að verða leikari. Ég þarf að fara í snyrtiskóla til að verða naglakona.,
Anna Björg
Ég ætla að verða búðakona
Ég þarf að læra að reikna og vera kurteis og hjálpsöm og læra á kassann og hvar dótið á að fara. Ég þarf á námskeið og maður þarf að læra vel, það verður gaman að vinna í búð.
Amila
Ég ætla að verða flugfreyja. Til að verða flugfreyja þarf maður að fara í flugþjónaskóla og mig larngar líka að verða hárgreiðslukona og þá þarf ég í hárgreiðsluskóla.
08.01.2010 15:12
Gleðilegt ár !
Kveðja Gunna og Olla

