26.02.2010 14:24

Skjaldamerki Íslands

Við erum á fullu að læra um Ísland. Í morgun vorum við að skoða skjaldamerki Íslands og þjóðsöguna sem því fylgir.
Sagan segir að einu sinni fyrir langa löngu hafi útlendur kóngur ætlað að senda her til Íslands. Hann bað galdramann að fara á undan og njósna á landinu. Galdramaðurinn breytti sér í hval og synti til Íslands. Þegar galdramaðurinn í hvalslíkinu kom að landinu kom hann að Vopnafirði og þar tók á móti honum Dreki mikill og varnaði honum uppgöngu. Norður í Eyjafirði kom á móti honum Gammur - stór fugl. Vestur á Breiðarfirði kom Griðungur - stórt naut á móti hvalnum og á Suðurlandi var það Bergrisi.
Hvalurinn fór aftur og hitti kóng sinn og sagði að ekki væri hægt að senda her til Íslands.


Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 40
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 70591
Samtals gestir: 20798
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 02:31:33